Í viku 15 keypti Sjóvá 755.000 eigin hluti að kaupverði 29.143.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
12.4.202210:02:41755.00038,6029.143.000
Samtals 755.000 29.143.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.

Sjóvá átti 61.054.266 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 61.809.266 eigin hluti eða sem nemur 4,88% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 8.617.472 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,68% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 305.499.293 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 5,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is